Hafið bláa hafið
Var varla lent þegar næsta ferðalag tók við! Stefnan var tekin í Grímsnesið á fjölskyldumót:) Gömlu voru mætt að vestan og allur skarinn! við vorum sennilega 25 og það var þvílík stemning. Það var byrjað á því að setja upp langborð í nýju lautinni fyrir alla línunna og þar vorum við meira og minna alla helginna. Föstudagsnóttin var brilljant, að geta sitið úti með kertaljós og kyndla og ekki verið kalt!! Amma var mesti stuðboltinn af okkur ollum! henni var komið fyrir í þægilegum stól, með teppi og beintengingu við hvítvinskútinn :) Enda söng hún hæðst af okkur ollum og uppáhaldslagið hennar þetta kvöld var Hafið bláa hafið. Enda söng hún það sennilega 50 sinnum! Ef það varð meira en 6 sek þögn milli laga byrjaði hún alltaf á þessu lagi! hehehe.. A laugardeginum var svo mikil steik! Eftir að hafa verið í sólbaði í lautinni allan daginn var ekki annað hægt en að fara í sund og svala sér. Fórum líka á myndlistarsyningu á Gömlu Borg og krúttuðumst eitthvað um sveitinna :) Laugardagskvöldið einkenndist í minningunni af Jukka og Pekka bröndurum frá Finnmörk! :) dísus hvað mér finnst þetta fyndnar sögur og sérstaklega þegar Bjarni segir þær:) Fjölsk. skellti sér svo í bæinn og allir beint í afmæli til systir hennar ömmu: ) Við vorum sem sagt límd saman á bakinnu alla helginna! Við gáfum henni ferð til einhverjar stórborgar með fylgdarliði! Brilljant enda er hún svo mikil hefðarfrú að henni finnst ekkert skemmtilegra en ad fara í menningunna, það er svo "fix" að hennar sögn :)
Framundan eru sæludagar! var beðin um að passa hús i 2 vikur frá og með morgundeginum!! Eins og þið vitið veitir það mér ómælda ánægju :) :) en íbúðarmálinn eru líka farin af stað.. byrjuð að skoða íbúðir svo VONANDI fer að styttast í frelsið:)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home